Reglur nr. 479/2002, um breytingu á reglum nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum.
1. gr.
3. gr. reglnanna orðast svo:
Laust starf telst nægjanlega auglýst ef auglýst er annaðhvort þannig:
- að auglýsing birtist á netinu á sérstöku vefsvæði um laus störf hjá ríkinu og til hennar sé jafnframt vísað að minnsta kosti einu sinni í yfirliti um laus störf hjá ríkinu sem birtist í dagblaði sem gefið er út á landsvísu. Í yfirlitinu skal tilgreina starfsheiti, nafn stofnunar, í hvaða sveitarfélagi starfsmaður verður staðsettur og hvert leita skuli varðandi frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur skal miðast við fyrstu birtingu yfirlits í dagblaði, eða
- að auglýsing birtist að minnsta kosti einu sinni í dagblaði sem gefið er út á landsvísu.
2. gr.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, öðlast gildi þann 1. október 2002.
Fjármálaráðuneytinu, 1. júlí 2002.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Sonja María Hreiðarsdóttir.
