Lögreglumaður - Lögreglustjórinn á Snæfellsnesi - Ólafsvík - 201201/079

Lögreglustjórinn á Snæfellsnesi
Auglýsing nr. 2/2012
Við embætti lögreglustjórans á Snæfellsnesi er laus til umsóknar staða lögreglumanns með aðsetur í Ólafsvík.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2012 en skipað verður í stöðuna frá og með 1. mars 2012.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á Snæfellsnesi, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Ólafur Guðmundsson yfirlögregluþjónn í síma 430 4142 eða í tölvupósti: olafurg@tmd.is.
Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100% og starfið vaktavinna. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins og vera sjálfstæðir í vinnubrögðum þar sem umsækjandi þarf að vera undir það búinn að vinna að einhverju leyti einn. Æskilegt er að hann hafi reynslu af rannsóknum mála og góða almenna tölvukunnáttu.
Umsóknir, sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur, verða ekki teknar til greina. Ríkislögreglustjóri skipar í stöðuna.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, http://www.logreglan.is/ undir liðnum eyðublöð.
Reykjavík, 20. janúar 2012
Ríkislögreglustjórinn
