Starfsumhverfi

- Könnun meðal starfsfólks um starfsumhverfi ríkisins

Í nóvember og desember 2006 stóðu fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjöf IBM fyrir viðamikilli viðhorfskönnun meðal starfsfólks ríkisins. Könnuninni var ætlað að afla upplýsinga um viðhorf ríkisstarfsmanna til stjórnunar, vinnuaðstæðna og annarra þátta sem áhrif hafa á líðan og árangur þeirra í starfi.

Niðurstöður voru birtar í skýrslu í apríl 2007 en á bak við niðurstöðurnar liggja viðhorf tæplega 10.000 ríkisstarfsmanna sem starfa hjá 144 stofnunum ríkisins. Sambærileg könnun var gerð árið 1998.

Könnunin leiddi ýmislegt jákvætt í ljós um starfsumhverfi ríkisstarfsmanna.

1. Meirhluti ríkisstarfsmanna er ánægður í starfi eða um átta af hverjum tíu. Hollusta starfsmanna til sinnar stofnunar er há en um sjö af hverjum tíu stefna á að vinna hjá stofnuninni a.m.k. næstu 2 árin,

2. Ríkisstofnanir leitast við að fá til starfa vel menntað og hæft starfsfólk og að móta störf og starfsumhverfi þannig að stofnanir reynist ákjósanlegur vinnustaður. Þannig er menntunarstig starfsmanna hátt en um 57% starfsmanna er með háskólamenntun. Einnig nefna meirihluti starfsmanna að um hafi verið að ræða áhugavert starf og að starfið hæfði vel menntun viðkomandi þegar spurt var um ástæðu þess að viðkomandi hóf störf hjá ríkinu. Í innlendum og erlendum könnunum nefna flestir sérfræðingar að þessi ástæða ráði meira um starfið en t.a.m. launaþátturinn.

3. Rúmlega 92% ríkisstarfsmanna telja að störf þeirra séu fjölbreytt og reyni á mismunandi hæfileika og færni. Um helmingur ríkisstarfsmanna telja sig ráða miklu um hvernig störf þeirra eru innt af hendi.

4. Tæplega 9 af hverjum 10 ríkisstarfsmönnum telja að þekking og hæfileikar þeirra nýtist vel í starfi. Áhersla á endurmenntun er einnig rík innan ríkisstofnana og hafa um 80% starfsmanna hafa varið tíma til sí- og endurmenntunar. Flestir sem sækja sí- og endurmenntunarnám telja að færni þeirra aukist í kjölfar námsins.

5. Í samræmi við markmið stjórnvalda hafa verulegar endurbætur verið gerðar á starfsemi ríkisstofnana undanfarin ár. Stofnanir hafa í auknum mæli sett fram mótaða starfsmannastefnu, sett niður skriflega starfslýsingar og stjórnendur tileinkað sér nýjar stjórnunaraðferðir til þess að bæta rekstur og starfsemi stofnana.

6. Konum í stjórnendastöðum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Undir lok árs 2006 var hlutfall kvenna í hópi stjórnenda annarra en forstöðumanna 48,3%. Meirihluti starfamanna eru ánægðir með næsta yfirmann og telja að hann beri hag starfsmanna sinna fyrir brjósti og taki vel í ábendingar um það sem betur má fara.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica