Ríkið sem vinnuveitandi

- Ríkið er stærsti vinnuveitandi landsins

Ríkið er stærsti vinnuveitandi landsins og býður upp á mjög fjölbreytt og krefjandi störf, enda er starfsemi þess margvísleg að eðli og umfangi.

Hjá ríkinu starfa tæplega 22 þúsund starfsmenn í um 18.000 stöðugildum og eru konur í meirihluta. Fjölmennustu hóparnir starfa í heilbrigðis- og félagsþjónustu, menntamálum og löggæslu.

Stofnanir ríkisins eru um 200 talsins en stærð þeirra er mjög breytileg. Hjá þeirri fámennustu starfa tveir en tæplega fimm þúsund hjá þeirri fjölmennustu. Fámennar stofnanir hentar vel þeim sem sækjast eftir fjölbreyttu starfi. Öðrum hentar betur að vinna á fjölmennum vinnustöðum þar sem möguleikar á starfsþróun og starfsframa eru aðrir.

Ríkið er þekkingarvinnustaður og starfsemi þess byggir fyrst og fremst á mannauði. Hjá ríkinu bjóðast störf úr öllum háskólagreinum og flestum öðrum starfsgreinum. Rúmur helmingur starfsmanna ríkisins er með háskólamenntun og þriðjungur er með starfs- og/eða framhaldsmenntun. Sérhæfing er oft mikil í störfum hjá ríkinu þar sem hæfileikar og þekking starfsmanna fá að njóta sín.

Möguleikar á sí- og endurmenntun eru miklir, gjarnan í góðu samstarfi við stéttarfélög starfsmanna. Flestir eiga kost á greiðslu úr starfsmenntunarsjóðum stéttarfélaga sinna vegna ýmis konar menntunar og þjálfunar.

Hjá ríkinu er lögð áhersla á jöfn tækifæri kynjanna á starfsframa og starfsþróun. Starfsmenn skulu metnir á eigin forsendum og kynbundin mismunun er óheimil í hvaða formi sem hún birtist. Konum í stjórnendastöðum hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Fjórðungur forstöðumanna eru konur og hlutfall kvenna í hópi annarra stjórnenda er tæplega 50 prósent.

Árlega eru auglýst tæplega tvö þúsund störf hjá ríkinu, á vinnustöðum um land allt. Ríkisstarfsmenn eiga kost tímabundnum vistaskiptum innanlands og á Norðurlöndum. Þannig geta starfsmenn skipt tímabundið um starfsvettvang til dæmis með því að starfa tímabundið hjá annarri ríkisstofnun eða „systurstofnunum“ á Norðurlöndum.

Vinnufyrirkomulag er fjölbreytt. Hlutastörf eru víða í boði ásamt sveigjanlegum vinnutíma og fjarvinnu þar sem því verður við komið. Víða er unnið samkvæmt vaktaskipulagi, sem hentar mörgum vel. Leitast er við að skapa starfsmönnum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar.

Starfsumhverfi og starfsánægja ríkisstarfsmanna skiptir miklu máli. Í könnun sem tæplega tíu þúsund ríkisstarfsmenn svöruðu kom fram að mikill meirihluti er ánægður í starfi og sjö af hverjum tíu stefna að því að vinna hjá stofnuninni sinni að minnsta kosti næstu tvö árin. Nánar er fjallað um niðurstöður könnunarinnar á sérstakri síðu.

Umsækjendur eru hvattir til að kanna hið mikla úrval starfa sem eru í boði á vegum ríkisins. Laus störf eru auglýst á starfatorg.is og kynnast má starfsemi ráðuneyta og einstakra stofnana á vefsíðum þeirra.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica