Kennsla og rannsóknir

Framhaldsskólakennari - Fjölbrautaskóli Snæfellinga - Grundarfjörður - 201007/048

21/7/2010

Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennara fyrir skólaárið 2010-2011.

  • Enska – 100%

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, almenn námsbraut og starfsbraut. Skólinn er með framhaldsskóladeild á Patreksfirði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru  nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og margs konar námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

Ráðið verður í stöðuna frá 10. ágúst 2010.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is eða Pétri Inga Guðmundssyni aðstoðarskólameistara á netfangið petur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Umsóknarfrestur er til 6. ágúst 2010.

Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma  4308400/ 8917384 og aðstoðarskólameistari á netfangið petur@fsn.is eða í síma 4308400/8683618. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica